6.10.1. gr. AlmenntLeiðbeiningar1 InngangurLeiðbeiningar þessar fjalla um húsnæði þar sem rekin er gististarfsemi, svo sem hótel, gistiheimili, gistiskálar og heimavistir, þ.m.t. stúdentagarðar. Húsnæði sem falla undir þá skilgreiningu að þar sé rekin gististarfsemi eru í notkunarflokki 4. Þegar gististaðir eru hannaðir eða þeim breytt er mikilvægt að gæta að aðgengismálum, eldvörnum, rýmingu og flóttaleiðum ef vá steðjar að, sbr. meðal annars e-lið í 1. grein laga nr. 160/2010 um mannvirki og í greinum 6.1.1., 6.1.2., 6.1.3 og 9.5.1. í byggingarreglugerð (brgl.). Fólk sem dvelur í mannvirkjum í notkunarflokki 4 er ekki allt nægjanlega kunnugt umhverfinu til þess að þekkja flóttaleiðir en er almennt fært um að bjarga sér sjálft út úr mannvirkinu eða á öruggt svæði við eldsvoða eða aðra vá. Krafa um öryggi mannvirka kemur meðal annars fram í 1. gr. laga um mannvirki. Húsnæði þar sem rekin er gististarfsemi fellur undir kröfur byggingareglugerðar 6.1.3. gr. kröfur um algilda hönnun. Með kröfum um algilda hönnun er átt við að byggingar sem þar eru tilgreindar skuli hannaðar þannig að þær nýtist öllum, þannig að bæði gestir og starfsmenn geti ferðast um þær og athafnað sig án sérstakrar aðstoðar. Umfram það að sjá til þess að fólk með skerta hreyfigetu geti komist um er nauðsynlegt við hönnun að taka tillit til þeirra sem búa við aðra skerðingu svo sem sjónskerðingu, jafnvel blindu, takmarkaða eða enga heyrn og þroskahömlun. Fyrir sjónskerta er dagsbirta og raflýsing mikilvæg sem og sjónlínur og allar merkingar, þar með taldar leiðarmerkingar og athyglissviði, sjá leiðbeiningar ÖBÍ Leiðarlínur og athyglissvæði innanhúss og grein 6.6.1 almennar kröfur um skilti, leiðbeiningar, handföng o.fl. vegna algildrar hönnunar og í leiðbeiningu HMS við grein 6.2.2. aðkomuleiðir og umferðasvæði innan lóðar. Fyrir heyrnarskerta skiptir góð hljóðvist og hljómburður mestu máli. Fyrir fólk með mismunandi þarfir og getu, meðal annars börn, aldrað fólk og einstaklinga með þroskahömlun, er einfalt umferðarkerfi og skýrar merkingar mikilvægar. Hvort sem er á ferðalögum eða í leiguíbúð til lengri eða skemmri tíma er mikilvægt að gistiaðstæður séu hannaðar með gott aðgengi í huga, sérstaklega fyrir þá sem nota hjólastóla eða önnur hjálpartæki. Öll opin rými hótela og gististaða svo sem aðkoma, móttaka, barir, veitingasalir og önnur sameiginleg svæði skulu hönnuð á grundvelli algildrar hönnunar. Sama gildir þegar um er að ræða aðra gistingu s.s. námsmannaíbúðir, gistiheimili, farfuglaheimili og þess háttar. Heimavistir og stúdentagarðar sem bjóða upp á langtímaleigu á herbergjum þar sem bað- og salernisaðstaða getur verið samnýtt ásamt eldhúsi og samverurýmum. Þessi sameiginlegu rými ásamt aðkomu að byggingum og umhverfi þeirra skal ávallt hanna með aðgengismál í forgrunni til að auðvelda einstaklingum með mismunandi þarfir að búa nálægt skóla og taka þátt í skólasamfélaginu. Herbergi sem hönnuð eru sérstaklega fyrir hreyfihamlaða eru yfirleitt stærri en venjuleg herbergi en margar af þeim kröfum sem eru gerðar fyrir slík herbergi gagnast öllum og bæta bæði þægindi og öryggi notenda. 2 GistiherbergiKrafa er um að öll gistiherbergi hótela, gistiheimila og gistiskála skulu vera með glugga á útvegg, sbr. 6.10.3. gr. brgl., og að í húsnæðinu séu lyftur á milli hæða til að tryggja aðgengi allra að húsnæðinu. Hönnuður skal meta þörf fyrir lyftur í mannvirkinu umfram lágmarkskröfur, sjá nánar í 6.4.12. gr. brgl. um lyftur og lyftupalla og leiðbeiningar þar um. Eitt af hverjum tíu gistiherbergjum hótela, gistiheimila og gistiskála skal innrétta fyrir hreyfihamlaða þó aldrei færri en eitt, sbr. 2. mgr. 6.10.3. gr. brgl. um hótel, gistiheimili og gistiskála. Önnur gistiherbergi eru þá undanþegin kröfu um algilda hönnun. Algengt viðmið er gistiherbergi með svefnplássi fyrir 1-2 manneskjur en sama gildir þó fyrir farfuglaheimili, gistiheimili og gistiskála sem falla undir þessa skilgreiningu og bjóða sameiginlega gistiaðstöðu fyrir stærri hópa ásamt sameiginlegri bað-, salernis- og eldunaraðstöðu. Mikilvægt er að hafa í huga að ef mannvirki samkvæmt 6.11.1. gr. brgl. um frístundahús og 6.11.2. gr. brgl. um sæluhús, veiðihús, fjallaskála o.fl. er ætlað til útleigu þá gilda kröfur byggingarreglugerðar um algilda hönnun eftir því sem við á. Mikilvægt er að huga að rými til athafna og sérlausnum í húsbúnaði svo sem hæð rúma og styrkingar á köntum þeirra, hæðir borða og aðgengilegar fatageymslur eru nauðsyn þegar um einstaklinga með skerta hreyfigetu er að ræða, sjá Rb- leiðbeiningablöð og handbókina Aðgengi fyrir alla. ![]() 2.1 Dyraop og hurðirHindrunarlaus umferðarbreidd allra dyra að íbúðar- og baðherbergjum skal minnst vera 0,80 m að breidd og 2,00 m að hæð. ![]() Hindrunarlaus umferðarbreidd (umferðarmál) mælist með hurðarblað 90° opið frá mótlægum karmi að hurðarblaði. Þar sem ekki er unnt að opna hurð meira en 90° og handföng eru sett á hurðarblað nálægt lömum þarf að breikka umferðarmálið sem því nemur. ![]() Lágmarkskrafa á baðherbergjum innan herbergja gististaða þar sem krafa er um aðgengi fyrir hreyfihamlaðra er að hindrunarlaust snúningssvæði til athafna sé að minnsta kosti 1,50 m að þvermáli eða 1,30 m x 1,80 m. Aðgengi að salerni sé ekki minna en 0,90 m að minnsta kosti frá annarri hlið (frekar hægra megin) og aðgengi að handlaug henti hjólastólanotendum. ![]() Baðaðstaða skal vera án þrepa og þröskulda. Sturtubotn skal vera felldur í gólf og án brúna eða kanta og sé sturtusvæði afmarkað með föstum veggjum eða innréttingum skal vera nægjanlegt rými til að athafna sig að minnsta kosti 1,30 m x 1,60 m. ![]() 3 Heimavistir og stúdentagarðarHeimavistir og stúdentagarðar sem bjóða upp á langtímaleigu á herbergjum þar sem bað- og salernisaðstaða getur verið samnýtt ásamt eldhúsi og samverurýmum. Þessi sameiginlegu rými, ásamt aðkomu að mannvirkinu og umhverfi þess, skal ávallt hanna á grundvelli algildrar hönnunar til að gera einstaklingum með mismunandi þarfir kleift að leigja námsmannaíbúðir til jafns við aðra stúdenta og til að geta tekið þátt í skólasamfélaginu. 4 ÍtarefniEftirfarandi eru tilvísanir í efni sem getur komið sér vel að vita af en ATH! að eftirfarandi ítarefni getur verið gert eftir byggingarreglugerðum sem fallnar eru úr gildi. Yfirlit yfir breytingar sem gerðar hafa verið á leiðbeiningunni:
|




