10.4.3. Kröfur til raflýsingarLeiðbeiningarInngangurÍ byggingum skal ljósvistin stuðla að öryggi, heilsu og þægindum. Tryggja skal að byggingar og aðkoma þeirra hafi fullnægjandi lýsingu, sem felur í sér bæði nægilegt dagsljós og viðeigandi raflýsingu. Einnig þarf að tryggja nægilegt útsýni frá byggingum. Meta skal dagsljós, raflýsingu og útsýni í samhengi við þær athafnir og verkefni sem fyrirhugað er að fari fram í hverju rými fyrir sig og tryggja að dagsljós nýtist fyrst og fremst sem ljósgjafi í mannvirkjum. Þegar gluggar eru endurnýjaðir skal eftir fremsta megni koma í veg fyrir að dagsljósaskilyrði versni og leitast við að bæta þau ef mögulegt er. Krafan um dagsljós skal skoðuð í ljósi almennra heilsufarslegra áhrifa dagsljóss. Aðgangur að dagsljósi og útsýni hefur áhrif á dægursveiflu og andlega líðan einstaklinga. Magn dagsbirtu í mannvirkjum hefur jafnframt áhrif á orkunotkun raflýsingar. Góð nýting á dagsljósi dregur úr þörf fyrir raflýsingu, en getur aukið hættu á glýju og ofhitnun í mannvirkjum. Mikilvægt er að hægt sé að stýra dagsljósi og hita frá sólu. Stýringin þarf að miða að jafnvægi milli góðrar innivistar og takmarkaðrar orkunotkunar. Skilgreiningar
LeiðbeiningarÍ atvinnuhúsnæði fer lýsingarhönnuður að lágmarki yfir eftirfarandi með verkkaupa: ⦁ Rými: hurðastaðsetningar, gluggar, tegund lofts og hitastig, notkun rýmis, staðsetning vinnusvæða innan rýmis, notendur með sérþarfir ⦁ Ljóseiginleikar: litarhitastig, litarendurgjöf, meta hvort lýsing eigi að vera: bein/óbein og dreifð/stefnuvirk eða samblanda ⦁ Uppsetning: hvernig eru lampar uppsettir; innfeldi/utanáliggjandi/niðurhangandi/ standandi ⦁ Stýringar: ljósa eða hreyfiskynjarar, svæðiskiptingar, senur og möguleikar á breytilegu ljósmagni (dimmer) Eigandi byggingar ber ábyrgð á að raflýsing í byggingu uppfylli lágmarkskröfur miðað við fyrirhuguð not hennar. Vinnuveitandi ber ábyrgð á að raflýsing sé nægjanleg fyrir starfsfólk sitt. Hvort raflýsing sé nægjanleg í og við mannvirki er metið með stöðlununum ÍST EN 12464-1 fyrir rými innandyra og -2 fyrir rými utandyra. Gefnar eru upp lágmarkskröfur fyrir vinnusvæði í rýmum og fyrir rými í heild sinni. Staðlarnir koma ekki í staðinn fyrir hönnun. Þegar lýsingarhönnun hefur átt sér stað skal nota viðeigandi staðla til að tryggja að lágmarkskröfum sé náð. Þegar rými í heild sinni er metið skal staðsetja reikninet eftir notkun rýmis (0,1m yfir gólfi fyrir upplifunarrými eða gangvegi og 0,85m yfir gólfi þar sem setið er til borðs) og reiknipunktar skulu miðast við staðlana ÍST EN 12464-1 og -2. Þegar endurkast flata er óþekkt skal nota gildi sem koma fram í töflu í kafla 10.4.4. Þegar glýja er metin skal velja þá aðferðarfræði sem hentar bæði þeim búnaði og aðstæðum sem eru fyrir hendi. Þegar glýja er metin innandyra skal uppfylla kröfur skv. ÍST EN 1244-1 fyrir UGR aðferðina þegar aðferðin er nothæf fyrir sjónarhorn og lampabúnað. Þegar glýja er metin utandyra skal uppfylla kröfur skv. ÍST EN 12464-2 fyrir RG aðferðina. Í öllum tilfellum skal upplýsa um aðstæður og ástæður fyrir vali á þeirri aðferð sem notuð var. Sjá nánari útskýringu á UGR aðferð og RG aðferð í RB blaði um raflýsingu. (sem verður aðgengilegt frá mars 2026) Nýta skal dagsbirtu- og hreyfiskynjara eftir aðstæðum. Þegar slíkur búnaður er notaður skal tryggja að hann uppfylli þá virkni sem þarf m.t.t. stærðar , hæðar og áætlaðrar notkunar rýmis. Gera skal grein fyrir því í hönnunargögnum hvernig búnaður hentar hverju rými fyrir sig og staðsetning búnaðar skal valinn með tilliti til útfærslu rýma og staðsetningu hurða inn í rými þannig að uppsettur búnaður þjóni notkun og innréttingu rýmis samhliða því að stuðla að orkusparnaði. Svæðaskipting lýsingar nýtist til þess að takmarka notkunartíma ljósgjafa. Til dæmis er æskilegt að lampar út við glugga séu á einni kveikingu/rofa en lampar innar í rýminu séu á einni eða fleiri kveikingum/rofum. Virkniprófun raflýsingar skal framkvæmd skv. leiðbeiningum byggingarreglugerðar fyrir virkniprófun raflýsingar og stýringa. Ef notaðir eru dagsbirtu- og hreyfiskynjarar (eða samsettir skynjarar) skal liggja fyrir lýsing og/eða teikningar sem sýna staðsetningu þeirra og hvaða svæði þeir ná yfir. Yfirlit yfir breytingar sem gerðar hafa verið á leiðbeiningunni:
|