Leiðbeiningar fyrir virkniprófun raflýsingar og stýringar – Ítarefni við 10.4.3. gr.LeiðbeiningarÍtarefni við grein 10.4.3. í byggingarreglugerð InngangurMeginmarkmið þessara leiðbeininga er að tilgreina og útskýra ástæður virkniprófana, hvernig þær skulu framkvæma, hverjir beri ábyrgð á framkvæmd og hvaða búnað þurfi til þess. Einnig er markmið að upplýsa um hvað þarf að skjala um virkniprófun til að sýna fram á að hún sé ásættanleg. Þessar leiðbeiningar eru þýddar frá Danskri útgáfu af byggingarreglugerðinni BR18. Markmið virkniprófana er að sýna fram á að uppsettur búnaður í rekstri virki eins og lagt var upp með í hönnun mannvirkis. Virkniprófun er einungis gerð fyrir raflýsingu innandyra. Engar kröfur eru gerðar um hver framkvæmir virkniprófunina. Hins vegar er mælt með því að notast sé við óháðan þriðja aðila sem ekki tengist hönnuðum eða verktökum, þar sem hagsmunaárekstrar geta átt sér stað. Virkniprófun getur einnig verið framkvæmd af þeim verktökum sem unnu tæknilegu uppsetningarnar, að viðstöddum óháðum þriðja aðila eða fulltrúa eiganda byggingarinnar. Einnig er mælt með því að virkniprófun sé framkvæmd af menntuðum sérfræðingi með viðeigandi þekkingu og reynslu á mælitækni. Sum verkefni geta fallið undir kröfur um að prófunin sé unnin af löggiltum uppsetningaraðila. Að auki skal tekið fram að það er ávallt á ábyrgð eiganda byggingarinnar að tryggja að kröfur byggingarreglugerðarinnar séu uppfylltar. Mælitæki sem notast við virkniprófanir skulu vera áreiðanleg og kvörðuð samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda. Mæliaðferðir skulu fylgja gildandi stöðlum, eftir því sem kostur er. 1 Virkniprófun: BirtaFramkvæma skal virkniprófun á lýsingarkerfinu áður en það er tekið í notkun. Virkniprófunin skal sýna fram á hvort lýsingarkerfið uppfylli kröfur byggingarreglugerðar um birtu innan mannvirkis. 1.1 Tilgangur með virkniprófun á birtuSanna þarf að raflýsingarkerfið uppfylli kröfur byggingarreglugerðar um birtu samkvæmt ÍST EN 12464-1. Tæknilegar kröfur til lýsingar skulu geta verið uppfylltar út allan líftíma kerfisins. Lýsingarkerfi ætti ætíð að vera hannað í samræmi við lýsingarútreikninga. Heildarmarkmið virkniprófunar lýsingarkerfis er að sýna fram á að lýsingarkerfið skili því sem lýsingarútreikningar tilgreina. Þannig skal prófunin staðfesta að raflýsingarkerfið uppfylli kröfur byggingarreglugerðar samkvæmt ÍST EN 12464-1. Þessar kröfur fela í sér:
Einnig skal staðfesta að tækniblöð sýni fram á að glýjuviðmið lampa séu skv. viðmiði í hönnun fyrir UGR töfluaðferðina þegar sú aðferð gildir (vegna sjónarhorns, lampabúnaðar og uppsetningar). Flökt í búnaði skal einnig uppfylla forsendur skv. hönnunargögnum. 1.2 Forsendur fyrir framkvæmd virkniprófunarÁður en virkniprófun fer fram skal eftirfarandi vera uppfyllt:
1.3 MælipunktarSem mælipunkta skal velja net sem nær yfir að minnsta kosti 25% vinnusvæða (að lágmarki eitt vinnusvæði) og nokkra dæmigerða staði á almennum umgengnissvæðum, t.d. göngum og stigum. Fjöldi mælipunkta í netinu er ákvarðaður samkvæmt ÍST EN 12464-1. Ef prófun sýnir frávik skal auka umfang mælinga á mælisvæðum. Ef margar mælingar víkja frá væntum gildum samkvæmt lýsingarútreikning er mælt með að hafa samband við byggingaraðila til að skýra næstu skref. Mælingar skulu framkvæmdar á nægilega mörgum mælipunktum í öllum rýmum, bæði stórum og litlum, til að staðfesta að Ēmin, Ēm og Ēmax séu í samræmi við útreikningana. Ef vinnusvæðin eru ekki komin á sinn stað fyrir virkniprófun, skal áætla vinnusvæði. Þeim forsendum skal lýst í skjölum virkniprófunarinnar. 1.4 Notkun viðhaldsstuðulsKröfur í ÍST EN 12464-1 eru tilgreindar sem Ēm – viðhaldin birta. Lýsingarkerfið þarf því að geta veitt meira ljós við gangsetningu en kröfur kveða á um, vegna áhrifa viðhaldsstuðuls (sbr. ÍST EN 12464-1, kafla 6.3). Ef mæld gildi standast kröfurnar aðeins nákvæmlega, getur það bent til þess að kerfið hafi verið stillt til orkusparnaðar, þannig að það gefi ekki meira ljós en nauðsynlegt er hverju sinni. Í slíku tilviki skal sannreyna að kerfið geti veitt ljós sem samsvarar fm = 1. Fyrir rými án sjálfvirkrar dagsljósstýringar þýðir þetta að mældur lýsingarstyrkur skal samsvara kröfunni auk þess sem bætist við samkvæmt viðhaldsstuðli fm. Ef fm = 0,79 skal mældur styrkur vera a.m.k. 1,27 × krafa ÍST EN 12464-1. Fyrir rými með sjálfvirka dagsljósastýringu skal kanna viðmiðunarpunkt stýringarinnar og reikna birtu við lok líftíma út frá honum. Ef ekki er hægt að afla upplýsinga um viðmiðunarpunkt, skal stilla lýsinguna handvirkt á hámarksafköst og bera mælinguna saman við Ē til að meta hvort viðhaldsstuðullinn hafi verið rétt notaður. Ef rými er án húsgagna við mælingu, er mælt með því að draga 10% frá birtu mæligildum. 1.5 Viðmið fyrir samþykkiNiðurstöður virkniprófunar eru samþykktar ef mæld meðalbirta o.fl. samsvara kröfum ÍST EN 12464-1 um viðhaldin birtuviðmið. Heimilt er að samþykkja allt að 10% frávik vegna mælióvissu. 1.6 SkjölunÚtbúa skal skýrslu um virkniprófun sem lýsir:
2 Virkniprófun: LjósastýringLjósastýringar nýtast til orkusparnaðar og notendaþæginda. Almennt gildir að ef nægilegt dagsljós er til staðar er skynsamlegt að nýta sjálfvirka dagsljósstýringu. Vinnurými og sameiginleg svæði sem aðeins eru notuð af og til gagnast mest og best af hreyfiskynjara. Auk þess er gott að skipta rými upp í svæði til að draga úr lýsingu þar sem dagsljós er mikið eða þar sem svæði er ekki í notkun. 2.1 Tilgangur virkniprófunar á ljósstýringuTilgangurinn er að sannreyna að ljósastýringin sé uppsett skv. hönnunargögnum og virki samkvæmt hönnunarforsendum. Ljósastýring felur í sér sjálfvirka dagsljósastýringu, hreyfiskynjara og svæðaskiptingu lýsingarkerfis. 2.2. Forsendur fyrir framkvæmd virkniprófunarÁður en virkniprófun fer fram skal tryggt að:
2.3 MælipunktarLjósstýringin skal prófuð í að minnsta kosti 25% svæða (t.d. 25% vinnusvæða í opnum skrifstofum eða 25% af einstaklingsskrifstofum) og á nokkrum stöðum í almennum svæðum, t.d. göngum, stigum, salernum og bílageymslum. Ef niðurstöður víkja frá væntum gildum miðað við fyrirliggjandi gögn, skal hafa samband við byggingaraðila til að ákveða næstu skref. 2.4 DagljósstýringPrófun dagsljósstýringar fer fram við mismunandi birtuskilyrði til að ná bæði hárri og lágri dagsbirtu. Prófun við rökkur getur t.d. farið fram með dregnum gardínum eða lokaðri sólafskermun. Viðeigandi atriði sem skal skoða:
Ef notuð er sena fyrir lýsinguna skal staðfesta að hún virki samkvæmt hönnun. Ef stýring er byggð á birtumælingum utandyra skal framkvæma mælingar samtímis inni og úti til að staðfesta rétta virkni. Einnig skal staðfesta að lýsingin kvikni ekki ef birta utandyra er yfir stilltu viðmiðunargildi, en kvikni og aðlagist að birtustigi þegar það fer niður fyrir viðmiðunargildi. 2.5 HreyfiskynjararFramkvæma skal handvirka prófun til að staðfesta að hreyfiskynjarar virki rétt Eftirfarandi skal prófa og skrá:
2.6 SvæðaskiptingFramkvæma skal handvirka prófun til að staðfesta að svæðaskipting sé í samræmi við byggingargögn. Eftirfarandi skal prófa og skrá:
2.7 Viðmið fyrir samþykkiNiðurstöður virkniprófunar á ljósstýringu eru samþykktar ef ljósstýring virkar í fullu samræmi við skjölun. Frávik sem ekki leiða til aukinnar raforkunotkunar til lýsingar má þó samþykkja, svo lengi sem lágmarkskröfur ÍST EN 12464 eru uppfylltar. 2.8 SkjölunÚtbúa skal skýrslu um virkniprófun sem inniheldur:
HeimildirEnergiforbrug og klimapåvirkning. Sótt 18. september 2025. https://www.bygningsreglementet.dk/tekniske-bestemmelser/11/brv/version-2-funktionsafprovning/ Yfirlit yfir breytingar sem gerðar hafa verið á leiðbeiningunni:
|