2.4.3. Sérstakar kröfur (vegna byggingarleyfis)

Leiðbeiningar

1 Hvenær er þörf á prófun, skoðun eða vottun

Eigendur mannvirkja eiga kost á að koma ábendingum til leyfisveitanda varðandi meinta galla í mannvirkjum sem geta leitt til þess að leyfisveitandi fari fram á prófun, vottun eða skoðun.

Leyfisveitandi getur einnig farið fram á prófanir vegna hönnunar mannvirkisins svo sem álagsprófanir vegna burðarstyrks, niðurbeygju byggingahluta, stöðuleika mannvirkisins, þéttleika, hitaútstreymis og hjóðvistarkrafna, enda sé rökstuddur grunur um að kröfur séu ekki uppfylltar eða um nýjung að ræða.

Eftir að ákvörðun hefur verið tekin um að krefjast prófunar, vottunar eða skoðunar skal leyfisveitandi veita hæfilegan frest til að leggja fram frekari gögn til staðfestingar á að mannvirki eða hlutar þess uppfylli ákvæði byggingarreglugerðar og viðeigandi staðla.

Dæmi 1:

Leyfisveitandi fer fram á að prófanir séu gerðar á einstökum byggingarhluta í fullbyggðu mannvirki, til dæmis hvort hönnun púða undir mannvirki og framkvæmd þjöppunarprófs uppfylli forsendur og skilgreiningar í hönnunargögnum og greinagerðum hönnuða sem og ákvæði gildandi byggingarreglugerðar og viðeigandi staðla.

Dæmi 2:

Leyfisveitandi fer fram á að prófanir séu gerðar á einstökum byggingarhluta í fullbyggðu mannvirki, til dæmis hvort hljóðeinangrun einstakra rýma uppfylli forsendur og skilgreiningar í hönnunargögnum og í greinagerðum hönnuða sem og ákvæði gildandi byggingarreglugerðar og viðeigandi staðla.

2 Framkvæmd prófunar, vottunar eða skoðunar

Ef þörf er á prófun, vottun eða skoðun skal hún framkvæmd af aðila sem viðurkenndur er af Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) til verksins og skal öll framkvæmd vera í samráði við leyfisveitanda. Almennt er við það miðað að eigandi mannvirkis eða annar sá aðili sem ábyrgð ber á viðkomandi framkvæmd semji við viðkomandi prófunar-, vottunar- eða skoðunaraðila um framkvæmd verksins og greiðslu kostnaðar. Leyfisveitanda er heimilt að krefjast þess að faggiltur aðili annist prófun, vottun eða skoðun, samanber lög um faggildingu og fleira. Séu ekki til staðlaðar prófunarlýsingar skal prófandi leggja fram skriflega lýsingu um prófunina ásamt rökstuðningi fyrir réttmæti prófunaraðferðar. Skoðunaraðili skal gera grein fyrir niðurstöðum prófunar, vottunar eða skoðunar í skýrslu.

Standist mannvirkið eða hluti þess ekki prófun, vottun eða skoðun skal leyfisveitandi gefa eiganda hæfilegan frest til að gera nauðsynlegar úrbætur. Geri eigandi ekki nauðsynlegar úrbætur getur leyfisveitandi gripið til viðeigandi úrræða, samanber 2.9. kafla byggingarreglugerðar.

3 Gjöld vegna prófunar, skoðunar eða vottunar

Allur kostnaður við prófun, skoðun eða vottun skal greiddur af eiganda mannvirkis.

Tilvísanir

ÚtgáfaLýsing á breytingu:Dags.
1.0 Á ekki við.10.1.2014
1.1 Stækkun á letri30.5.2018
1.2 MVS breytt í HMS4.2.2020
1.3 Yfirlit yfir breytingar. Breytingar á texta í kafla 115.12.2020
1.4 Breyting á heiti9.3.2021
1.5Húsnæðis- og mannvirkjastofnun breytt í Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun31.03.2026