9.6.13. Brunamótstaða hurða, hlera og gluggaLeiðbeiningarBrunamótstaða hurða, hlera og glugga InngangurSamkvæmt 9.2.1. gr. byggingarreglugerðar eru meginreglur ávallt ófrávíkjanlegar en viðmiðunarreglur eru frávíkjanlegar með tækniskiptum eða brunahönnun enda sé sýnt fram á að brunaöryggi sé ekki skert og uppfyllt séu meginmarkmið reglugerðarinnar og meginreglur þeirra ákvæða sem vikið er frá. Í þessum leiðbeiningum eru settar fram almennar viðmiðanir sem Húsnæðis‐ og mannvirkjastofnun telur að uppfylli ofangreindar meginreglur. Notkun þeirra í hverju tilfelli er á ábyrgð húseiganda eða viðkomandi hönnuðar eftir því sem við á. Leiðbeiningarnar koma ekki í veg fyrir að aðrar lausnir séu valdar enda séu þær rökstuddar af viðkomandi hönnuðum með fullnægjandi hætti. SkilgreiningarHurðir: Hér er átt við hurðir sem hafa skilgreinda brunamótstöðu og loka manngengu opi í brunahólfandi vegg. Hlerar: Byggingarhlutar með skilgreinda brunamótstöðu sem loka opi t.d. á brunahólfandi lagnastokki, eða brunahólfandi hleri að háalofti. Gluggar: Gluggar með skilgreinda brunamótstöðu, geta verið í innvegg, útvegg eða þaki byggingar. Brunatæknilegir eiginleikarBrunamótstaða hurða, hlera og glugga er skilgreind í mínútum skv. ÍST EN 13501-2 eftir staðlaða brunaprófun. Einnig má sjá brunaflokkun í viðauka I við byggingarreglugerð nr. 112/2012 Dæmi: Hurð sem er flokkuð sem EI230-CS200 er sjálflokandi, með þéttingar fyrir heitan og kaldan reyk og stenst kröfur um heilleika og einangrun í 30 mínútur. Heilleiki (E) Krafa um heilleika er grundvallarkrafa þannig að byggingarhluti getur ekki haft lengra einangrunar- eða geislunarþol en heilleikaþolið segir til um. Einangrun (I) Fyrir brunahólfandi hurðir er einangrunargildi skilgreint með flokki I1 eða I2 , við prófun samkvæmt ÍST EN 1634-1. Til að ná I1 eru strangari kröfur til hitaaukningar á karmsvæði hurðarinnar en fyrir I2. Flokkurinn I1 er ekki notaður í viðmiðunarkröfum byggingarreglugerðarinnar. Fyrir aðra brunahólfandi byggingarhluta er einangrunarkrafan skilgreind með I án undirflokkunar. Geislunarþol (W) - Hitageislun takmörkuð við 15 kW/m2. Sjálflokun (C) - flokkar C1 – C5 eftir því hve margar opnanir búnaðurinn á að þola. Reykþétting (s) Reykþétting er skilgreind með flokki Sa sem táknar þéttingu fyrir kaldan reyk og S200 sem er þétting fyrir 200 gráðu heitan reykprófað samkvæmt ÍST EN 1634-3. Þegar krafa er um S200 er almennt gert ráð fyrir að einnig sé krafist þéttingar fyrir köldum reyk þannig að S200 felur einnig í sér Sa. Í fyrri útgáfum reglugerðar var notað táknið Sm í stað S200 en bæði táknin hafa sömu merkingu. Staðfesting um nothæfiSamkvæmt lögum um byggingarvörur nr. 114 frá 2014 [1] þarf byggingarvara að vera CE-merkt eða hafa fengið staðfestingu á nothæfi frá HMS svo vara teljist löglega markaðssett. Í stuttu máli gildir eftirfarandi um CE-merkingu byggingarvöru:
Gluggar eiga almennt að vera með CE merkingu vegna þess að til er samhæfður staðall um glugga, ÍST EN 14351-1:2006+A2:2016 [5]. Með glugga er átt við gluggann sem heild, þar með talinn gluggakarm, gler, lista og þéttingar, sem allt þarf að standast prófum sem heild, samanber staðalinn. Auk þess að vera CE merktir þurfa gluggar að uppfylla kröfur byggingarreglugerðar sem kunna að varða notkun gluggans. Sjá nánari upplýsingar í leiðbeiningum HMS um CE-merkingu glugga á heimasíðu HMS. Fyrir brunahólfandi innihurðir hafa ekki verið gefnir út samhæfðir staðlar sem eru forsenda CE- merkingar. Í stað þess gildir að hurðir verða að fá staðfestingu HMS á nothæfi. Nauðsynleg fylgigögn slíkrar umsóknar og upplýsingar um ferlið er að finna á heimasíðu HMS. Til eru samhæfðir staðlar fyrir brunahólfandi útihurðir (EN 14351-1 [5]) og iðnaðarhurðir, bílskúrshurðir og sambærilegar hurðir (EN 13241-1 [4]) og því þurfa þær að vera CE-merktar. Kröfur og dæmi um notkunAlmenna reglan er að brunamótstaða brunahólfandi hurða, hlera og glugga í byggingum skal vera sú sama og byggingarhlutans sem þeir eru í. Öll frávik frá þeirri reglu þarf að rökstyðja til að sýna fram á að meginreglan sé uppfyllt, þ.e. að fyrirkomulagið auki ekki líkur á útbreiðslu elds og reyks. Í viðmiðunarreglu 9.6.13 eru nefnd nokkur tilvik þar sem mögulega má sýna fram á slíkt, þ.e. í göngum með litlu brunaálagi og í byggingum með vatnsúðakerfi. Þar sem brunaálag er lágt (undir 200 MJ/m2) og rúmtak er stórt eru litlar líkur á yfirtendrun og hröðum bruna. Því eru minni líkur á að hitastig nái hitastigi sem miðað er við í stöðuluðu brunaferli í rýminu. Aukið hitastig verður helst efst í rýmum, fyrir ofan hurðir og í reyksúlum við staðbundið brunaálag, sem almennt er ekki staðsett á flóttaleiðum/gönguleiðum. Notkun á vatnsúðakerfum lækkar hitastig í viðkomandi brunahólfi. þá verður hitastig ekki nægt til að valda yfirtendrun og helst bruninn því staðbundinn. Brunaálag ætti að vera lítið sem ekkert í flóttaleiðum og við hurðir og því má lækka kröfu á hurðir. Aðstæður skulu þó metnar hverju sinni, þó vatnsúðakerfi sé nýtt. Geislavörn skal gjarnan vera notuð í gleri með flóttaleiðum (t.d. EW 30) og hólfunakrafan aukin þar sem við á til þess að öryggi flóttaleiðar sé ekki lagt i hættu. Aðrar undantekingar eru teknar fram fyrir hvern notkunarflokk í sérákvæðum í greinum 9.6.18-22. Þessar undantekningar má rökfæra með lægra brunaálagi, tvöfaldri brunahólfun. Hér á eftir er nánar gerð grein fyrir helstu notkunarmöguleikum og hvaða frávikum er hægt að beita.
BrunatjöldBrunamótstaða brunatjalda er skilgreind eins og fyrir brunahurðir þ.e. skv. ÍST EN 13501-2 [3] eftir staðlaða brunaprófun og CE-merkt mv. staðal ÍST EN 16034. Til eru margar lausnir á markaðinum fyrir brunatjöld, ýmsar útfærslur eru til, allt frá því að hafa brunamótstöðu E30-EW90 að EI2120-Sa.Skoða þarf hvað hentar aðstæðumhverju sinni og fyrir hvernig aðstæður og stærð ops tjaldið er prófað fyrir. Hægt er að fá brunatjöld bæði fyrir lóðrétt og lárétt op. Einnig eru til reyktjöld sem eru ekki ætluð til brunahólfunar heldur til að hindra reykdreifingu og oft til að aðstoða við rýmingu. Þessi tjöld eru stundum látin falla niður hluta af hæðinni svo fólk geti rýmt undir þau. Slík reyktjöld og reyktálmar eru ekki til sérstakrar umfjöllunar hér (um þau gildir m.a. staðall ÍST EN 12101-1 [6]). Reyktjöld er hægt að fá með brunamótstöðu E0-EW120 og með Sa/S200 reykþéttni kröfu. Heimildir[1] Lög nr. 114/2014 um byggingarvörur. [2] ÍST EN 16034:2014 Dyrasamstæður fyrir fótgangandi umferð, iðnaðar-, verslunar- og bílageymsludyr og gluggar - Vörustaðall, notkunareiginleikar - Brunamótstaða- og/eða reykvarnarþéttleiki [3] ÍST EN 13501-2 Fire classification of construction products and building elements - Part 2: Classification using data from fire resistance and/or smoke control tests, excluding ventilation services [4] ÍST EN 13241-1 Hurðir og hlið á iðnaðar-, verslunar- og verkstæðisbyggingar - Vörustaðall, eiginleikar í notkun [5] ÍST EN 14351-1 Gluggar og útgöngudyr – Vörustaðall, eiginleikar í notkun – Hluti 1: Gluggar og útidyrasamstæður [6] ÍST EN 12101-1 Reyk- og hitastýribúnaður - Hluti 6: Kröfur til mismunaþrýstingskerfa - Ósamsett [7] ÍST EN 1634-1-3 Fire resistance and smoke control tests for door and shutter assemblies, opeanable windows and elements of building hardware. Part 1: Fire resistance test for door and shutter assemblies and openable windows, Part 2: Fire resistance characterisation test for elements of building hardware, Part 3: Smoke control doors and shutters Yfirlit yfir breytingar sem gerðar hafa verið á leiðbeiningunni:
|