10.4.5. Kröfur varðandi ljósmengun

Leiðbeiningar

Leiðbeiningar

Til vinna gegn ljósmengun gildir almennt einungis skuli nota ljós þegar og þar sem þess er þörf.

Sérstaklega skal leggja áherslu á að beina ljósi einungis að því svæði sem þörfin liggur og ljósmagn skal vera eins lágt og hægt er. Nota skal stýringar til að tryggja að viðeigandi ljósmagn sé til staðar þegar á þarf að halda. Nýta skal hlýja lýsingu þar sem hægt er, ljós með styttri bylgjulengdir (kaldari liti) skal forðast.

Útisvæði: Bílastæði, gönguleiðir og vinnusvæði utandyra skulu vera vel lýst og glýjufrí. Sérstaklega þurfa tröppur, skábrautir og inngangar að vera vel upplýstir til að styðja við sjónskerta einstaklinga. Það skal m.a. gert með því að:

⦁  Að ljósgjafar séu staðsettir í þeirri hæð og millibili sem þarf til að lýsing uppfyllir birtu og jafnleika skv. ÍST EN 12464-2 þar sem það á við. Fyrir athafnasvæði sem ekki er fjallað um í staðli skal miða við sambærileg svæði og kröfur þeirra. Fyrir svæði sem ekki finnst sambærilegt athafnasvæði með tilheyrandi lýsingarkröfum ber að taka tillit til aðliggjandi svæða og sjá til þess að heildar upplifun við og um nærliggjandi svæði valdi ekki óþægindum.

⦁  Fylgja þarf töflu 4 í staðli ÍST EN12464-2 fyrir hámark lýsingaráreitis samkvæmt því umhverfi sem uppgefið er í töflu sem passar best við viðfangsefnið.

Gróðurhús: Til að draga úr ljósmengun frá gróðurhúsum skal beita eftirfarandi ráðstöfunum:

⦁  Nota skal ljósþéttar gardínur sem hylja þak og hliðar mannvirkis að fullu þegar ekki er þörf á sólarljósi

⦁  Gardínur skulu hafa ljósgegnfarahlutfall að hámarki 5%.

⦁  Gardínur skulu vera lokaðar að lágmarki frá kl. 23:00 til 04:00.

Ljósaskilti: Til að koma í veg fyrir ljósmengun og truflun á umferð utan lóðar skal uppsetning og hönnun ljósaskilta uppfylla eftirfarandi kröfur:

⦁  Ljósaskilti skulu uppfylla flokk L1 samkvæmt ÍST EN 12966.

⦁  Hámarksljómi skal stilltur samkvæmt töflu 2 og má aldrei fara yfir tvöfalt viðmiðunargildi.

⦁  Á nóttu (≤4 lx) má ljómi ekki fara yfir 30 cd/m² fyrir hvítan lit.

⦁  Ljósmagn skal stillt sjálfvirkt eftir birtuskilyrðum, með hægfara stigvaxandi breytingu milli dags og nætur til að forðast sjóntruflun.

⦁  Ljósaskilti skulu hönnuð með geislahorni B1 eða B2 (ÍST EN 12966) eftir því hvort þau eru utan (B1) eða innan byggðar (B2).

⦁  Ljósi má ekki beina út fyrir lóðarmörk eða í átt að umferð þannig að það valdi glýju eða trufli athygli.

⦁  Ljósaskilti mega ekki flökta, blikka eða sýna myndbreytingar oftar en á 2 sekúndna fresti.

⦁  Við bilun skal ljómi sjálfkrafa lækka niður í næturstillingu (≤4 lx) eða slökkt skal á skiltinu.

⦁  Við eftirlit skal byggja á framleiðendagögnum sem sýna fram á að skilti uppfylli staðal ÍST EN 12966 og forritun skv. grein þessari.

Skilgreining á dag og nóttBirta á framhlið skiltis [lx]Hvítur
[cd/m2]
Gulur
[cd/m2]
Appelsínu-gulur
[cd/m2]
Grænn
[cd/m2]
Rauður
[cd/m2]
Blár
[cd/m2]
Sólríkur dagur≥ 10.000310018601200930775310
Dagur4.00055033021316513855
Sólarupprás / sólsetur4001509058453815
Sólarupprás / sólsetur401006025302510
Nótt≤ 43018797,23
Tafla 2: Ljómi [cd/m2] fyrir hvern lit á framhlið skiltis og birta [lx] sem mælist á framhlið skiltis

Yfirlit yfir breytingar sem gerðar hafa verið á leiðbeiningunni:

ÚtgáfaLýsing á breytingu:Dags.
1.0Á ekki við 19.01.2026
1.1Inngangur og skilgreiningar teknar út28.05.2026